3. DH fær viðurkenningu

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Á hverju ári býður Mjólkursamsölum 3. bekkjum á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu í heimsókn. Þar fá nemendur og kennarar að skoða framleiðsluferlið og kynnast sögu mjólkuriðnaðar. Hver bekkur fær svo að taka þátt í getraun, þar sem á að giska á földa skólamjólkurferna sem staflað og hrúgað er á stórt borð og sá bekkur sem giskar næst réttri tölu vinnur. Allir 3. bekkirnir í Hraunvallaskóla fóru á dögunum í skemmtiilega og fróðlega ferð í MS. Svo skemmtirlega vildi til að 3.DH varð hlutskarpasturí getrauninni.Í dag komu fulltrúar Mjólkursamsölunnar og færðu nemendum veglegar gjafir sem viðurkenningu fyrir góðan árangur í getrauninni.

MS_007

 

 

Kynningarfundur á miðvikudaginn kl. 20.00

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Kæru foreldrar/ forráðamenn

Í vetur hafa kennarar í unglingadeild Hraunvallaskóla unnið að þróunarverkefni sem snýr að þróun kennsluhátta í opnum skóla. Markmið verkefnisins eru m.a. að:

  • Nýta möguleika sem opinn skóli hefur upp á að bjóða.
  • Efla kennara í að vinna í opnum skóla, þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám og teymiskennslu.
  • Gera nám einstaklingsins heildstæðara og markvissara.
  • Auka skilning kennara á þörfum nemenda.
  • Efla sjálfstæði nemenda.

Því viljum við bjóða þér til kynningarfundar miðvikudaginn 8. febrúar kl 20.00. Allir kennarar í unglingadeild verða á staðnum ásamt skólastjórnendum. Í lok kynningar á sal verða umsjónarkennarar til viðtals á heimasvæði.

Unglingadeild_fundur

 

Drekar – Stoppmiðar – Vogarskálin

Prenta út Skoða sem PDF skjal

SMT teymi Hraunvallaskóla tók saman fjölda dreka sem gefnir hafa verið á árinu og fjölda skráðra stoppmiða. Skólinn hefur sett sér það markmið að fjöldi gefinna dreka skuli ávallt vera að lágmarki fimm sinnum fleiri en skráðir stoppmiðar. Við teljum mikilvægt að jafnvægi sé í notkun hvatningar og þess að setja börnum mörk. Æskilegt jafnvægi felst í því að nýta hvatningu (dreka) fimm sinnum á móti sérhverri afleiðingu (stoppmiðum). Niðurstaðan var sú að hér í Hraunvallaskóla eru allir árgangar skólans að meðaltali að nýta hvatningu (gefa dreka) í mun meira mæli en að setja mörk (stoppmiða). Oft voru gefnir 16 drekar á móti einum stoppmiða og erum við í SMT teyminu að vonum mjög ánægð með þennan árangur.

Vogarsklin

 

 

Vindur í útikennslu í 4. bekk

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Það blés hressilega á nemendur í 4. bekk í útikennslutíma í vikunni en það kom ekki að sök þar sem nemendur voru vel búnir og með rétta viðhorfið. Verkefnin voru unnin af kappi og með bros á vör, þó að nokkur verkefnaspjöld hafi látið illa að stjórn í vindinum. Hvort nafngift hópsins hafi haft eitthvað um veðrið að segja er ekki vitað en hér á ferð var einmitt hópurinn Vindur.

tikennsla__4._bekk_2

Lesa meira...
 

Góðir gestir í heimsókn

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þó ferð á vegum hafi verið slæm sl. fimmtudag þá fengum við samt tvo góða gesti í heimsókn. Fyrst ber að nefna Jón Ragnar Jónsson tónlistarmann, fjölmiðlamann og knattspyrnumann. Jón Ragnar spjallaði við krakkana í 8. bekk, sagði frá lífi sínu, ræddi um heilbrigðan lífsstíl og talaði gegn munntóbaksnotkun en Jón kom á vegum forvarnafulltrúa Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélagsins. Á sama tíma var Handknattleiksdeild Hauka með kynningu á handbolta í tengslum við Evrópumót karlalandsliða nú í janúar fyrir nemendur í 3.-7. bekk. Gísli Guðmundsson yfirþjálfari handknattleiksdeildar sá um kynninguna ásamt leikmönnum meistaraflokks karla og kvenna. Síðan tók við söngur á sal hjá yngstu deild og eins og myndin sýnir þá létum við vonda færð ekkert slá okkur út af laginu!

Samvera_yngri_deild_006minni

 

Vond færð á vegum

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Skólahald í Hraunvallaskóla er með venjubundnum hætti þó skafrenningur sé nú á höfuðborgarsvæðinu og vond færð á vegum en þó fer sundkennsla í Ásvallalaug og íþróttir á Ásvöllum fram í Hraunvallaskóla af þessum sökum. Lögreglan hefur varað fólk við að æða af stað á illa búnum farartækjum og viljum við þess vegna hvetja fólk til að íhuga það vel áður en það heldur út í einhverja óvissu með börnin sín. Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa. Að gefnu tilefni viljum við minna á áætlun vegna röskunnar á skólastarfi vegna veðurs. Áætlunina má finna hér.

roskun_skolastarfi

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL