Heilsueflandi grunnskóli
Hraunvallaskóli er heilsueflandi grunnskóli. Eitt helsta markmið heilsueflandi grunnskóla er að vinna markvisst að því að efla og stuðla að velferð og góðri heilsu nemenda, starfsfólks og samfélagsins. Í heilsueflandi grunnskóla er sérstök áhersla lögð á eftirfarandi átta þætti skólastarfsins: Nemendur, mataræði/tannheilsa, heimili, geðrækt, nærsamfélag, hreyfing/öryggi, lífsstíll og starfsfólk. Sjá nánar hér
- Eldri færsla
- Nýrri færsla