Aðalfundur foreldrafélags Hraunvallaskóla

11.5.2017

Kæru foreldrar/forráðamenn,

Aðalfundur foreldrafélags Hraunvallaskóla verður þriðjudaginn 16. maí, kl. 20:00 í matsal Hraunvallaskóla.

Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Skýrslur nefnda lagðar fram til samþykktar
4. Reikningar lagðir fram til samþykktar
5. Kosning formanns foreldrafélags og annarra stjórnarmanna
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Skýrsla fulltrúa í skólaráði lögð fram
8. Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins
9. Önnur mál

Fjölmennum og stöndum vörð um góðan skóla.

Verum öll hjartanlega velkomin.

Kær kveðja,
fyrir hönd stjórnar
Stefán Már Gunnlaugsson

Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is