• IMG_1848

Ævar vísindamaður

4.12.2017

Dagurinn byrjaði aldeilis vel hjá okkur í dag því hann Ævar vísindamaður kom og las fyrir okkur úr nýju bókinni sinni, Þitt eigið ævintýri og kynnti svo lestrarátakið sitt sem hefst í janúar. Það mátti heyra saumnál detta þegar Ævar las með tilþrifum um Hans og Grétu, þyrnigerði, prinsa og margt fleira spennandi. Takk kærlega fyrir okkur Ævar :)

Aevar


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is