Fjaröflun
Nemendur í 4.bekk Hraunvallaskóla langar til þess að sýna samhug og styrkja bekkjarbróður sinn og góðan vin Jón Hafdal. Hann er að berjast við krabbamein og hefur dvalið á spítala síðan í byrjun janúar og er óvíst hvenær hann kemur aftur heim. Ætla því krakkarnir að styðja við Jón með sölu á páskaeggjum og mun ágóðinn renna óskertur til hans.
Hægt er að skrá sig inn á þennan hlekk og skoða það sem er í boði. Einnig er hægt að deila þessum hlekk á sinni persónulegu síðu ef áhugi er fyrir því.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla