Gjaldfrjáls skóli í Hafnarfirði

18.7.2017

Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að greiða fyrir skólagögn allra grunnskólabarna. Fræðsluráð leggur til að frá og með komandi hausti muni Hafnarfjarðarbær útvega grunnskólanemendum námsgögn, þ.e ritföng og stílabækur, þeim að kostnaðarlausu.

Áætlaður kostnaður er um 20 milljónir króna. Tillögunni er vísað til bæjarstjórnar og viðauka við fjárhagsáætlun 2017. Með þessu stuðlar Hafnarfjarðarbær að frekari jöfnuði, minnkuðu kolefnaspori og minni sóun. Auk þess sem hagkvæmni næst í innkaupum og mögulega hagkvæmni í kennslustofunni. Foreldrar þurfa þá aðeins að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði og skriffærum til notkunar heima.WP_20170216_09_11_54_Pro


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is