Halloween draugahús

1.11.2017

HalloweenMiðvikudaginn 1.nóvember er félagstmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur en þá bjóðum við mið- og unglingadeild ásamt foreldrum að koma í Mosann og kynnast starfinu okkar. 
Síðustu ár höfum við haft alls konar dagskráliði þetta kvöld og í ár er engin breyting þar á því við ætlum að hafa HALLOWEEN DRAUGAHÚS í Mosanum! 

Þá er líka síðasti séns að skrifa undir leyfisbréf og greiða fyrir þátttöku í Sleepover sem verður á föstudaginn. Þetta er frábært ástæða til þess að kíkja í Mosann, hitta starfsfólkið, sjá starfsemina, skrifa undir leyfisbréfið og eiga gott kvöld með unglingunum ykkar í leiðinni.


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is