Slæm veðurspá í dag

7.12.2015

Samkvæmt veðurspá verður afar vont veður seinnipartinn í dag og á morgun. Skólinn verður að sjálfsögðu opinn og eru foreldrar beðnir um að kynna sér vel viðbragðsáætlun vegna óveðurs. Sjá hér. Vegna óveðursins sem er væntanlegt eftir hádegi verður lokað í Hraunseli kl.16 í dag og viljum við biðja ykkur að sækja börnin fyrir þann tíma. Það verður ekki íþróttafylgd í dag heldur verður bara kósí saman í föndri, leik og vídjói :) Mosinn verður LOKAÐUR í kvöld af sömu ástæðu en við höfðum fyrir helgi fellt niður miðdeildarstarfið í þessari viku af þvi við erum með ball fyrir þau á föstudaginn kl.17-18:30 :) Á fimmtudaginn er Söngkeppni Mosans og viljum við bjóða foreldrum og systkinum að mæta á þessa frábæru tónleika og eiga gott kvöld með okkur :)


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is