Samtalsdagur

25.1.2016

Þriðjudagurinn 26. janúar er samtalsdagur í Hraunvallaskóla. Þá mæta nemendur ásamt foreldrum sínum til viðtals hjá umsjónarkennara. Engin kennsla er þennan dag. Aðrir kennarar eru einnig til viðtals þennan dag samkvæmt samkomulagi. Við vekjum athygli á að nemendur í 7. bekkjum verða með kaffisölu á 1. hæð sem er fjáröflun vegna komandi ferðar í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði. Athugið að eingöngu er hægt að greiða með peningum fyrir veigarnar. Við minnum einnig á að hægt er að nálgast óskilamuni þennan dag sem endranær.Hafnarfjarðarbær


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is