Skólahreysti

4.3.2016

Í gær tók Hraunvallaskóli þátt í Reykjanesriðli Skólahreystis ásamt fimmtán öðrum skólum. Keppendur Hraunvallaskóla voru Bjarki Snær Eysteinsson upphífingar & dýfur, Emilía Íris Brown armbeyjur & armhanga, Breki Snorrason hreystibraut, Veróníka Von Harðardóttir hreystibraut og  Þórir Eiðsson og Ásthildur Rós Imsland voru varamenn.  Þeim fylgdi síðan flottur hópur stuðningsmanna sem stóð þétt við bakið á þeim. Hraunvallaskóli var efstur Hafnarfjarðarskólanna og lenti í 4. sæti að þessu sinni sem er mjög góður árangur en Reykjanesriðillinn gengur undir nafninu ,,dauðariðillinn“ þar sem svo margir hraustir skólar eru í þeim riðli. Til hamingju krakkar!!


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is