Perú

26.10.2017

Við erum svo heppin í Hraunvallaskóla að hafa fjölþjóðlegt samfélag. Fjórði bekkur fékk góðan gest í heimsókn í morgun. Það var hún Vera sem er að vinna hérna í skólanum og hún sagði þeim frá Perú í tengslum við bókina Komdu og skoðaðu sögu mannkyns. Hún kom einnig með fullt af spennandi hlutum og sýndi þeim. Krökkunum fannst þetta virkilega skemmtilegt og Veru var þakkað kærlega fyrir heimsóknina.

4ba4b-d4b-e4b-f4b-c


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is