Röskun á skólastarfi vegna óveðurs

11.11.2016

Nú þegar haustlægðir ganga yfir landið hver á eftir annarri er gott að rifja upp viðbrögð foreldra þegar kemur að rösku á skólastarfi vegna óveðurs en Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS) hefur verið falið af sveitarfélögunum á svæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld. Um ábyrgð foreldra gildir eftirfarandi... 

Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgist sjálfir með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum upplýsingum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barnanna og hegði sér í samræmi við aðstæður hverju sinni. Aðstæður geta þróast með ófyrirséðum hætti og verið mismunandi eftir svæðum.

Skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar eru opnar nema annað sé tilkynnt. Í upphafi skóladags getur mönnun skóla verið takmörkuð og geta foreldrar þá búist við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Foreldrar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.

Foreldrar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í skóla, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. vegna vanbúinnar bifreiðar til vetraraksturs.

roskun

Tilkynningar

SHS kappkostar að koma tilkynningum um röskun á skóla- og frístundastarfi tímanlega á framfæri í samvinnu við útvarpsstöðvar og vefmiðla og er miðað við að slíkar tilkynningar berist eigi síðar en kl. 7 að morgni, sé ákvörðun tekin í upphafi dags. 

Áríðandi er að foreldrar fylgist með tilkynningum og fari að tilmælum. 

Símkerfi skóla eru misvel undir það búin að anna miklu álagi og er foreldrum því bent á að fylgjast með tilkynningum og afla upplýsinga í fjölmiðlum, á heimasíðum skóla, á vef slökkviliðsins (www.shs.is) og á Facebook-síðum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Foreldrar skulu ævinlega leita eftir staðfestum tilkynningum yfirvalda og forðast að láta stjórnast af mati barnanna á aðstæðum. 

Útsendar tilkynningar SHS eiga ávallt við um höfuðborgarsvæðið í heild, en aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og bæjarhlutum.

Tilkynningar verða eftirfarandi:
  1. Daginn áður vegna veðurspár. 
    (Sé veður í lagi er sjaldnast send út tilkynning vegna þessa en ítrekað fyrir foreldrum að fylgjast með veðri).
  2. Að morgni dags vegna óveðurs eða færðar.
  3. Síðdegis ef veður hefur versnað meðan á skólahaldi/frístundarstarfi stendur.
  4. Að morgni dags ef óveður hamlar skólahaldi.


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is