Skipulagsdagur og vetrarfrí

16.2.2017

Miðvikudagurinn 22. febrúar er skipulagsdagur samkvæmt skóladagatali. Nemendur mæta ekki í skólann þennan dag en Hraunsel er opið fyrir þá nemendur sem þar eiga vist. Vetrarfrí fylgir síðan í kjölfarið því fimmtudaginn 23. febrúar og föstudaginn 24. febrúar er vetrarfrí í skólanum. Hraunsel er lokað í vetrarfríinu.  Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá mánudaginn 27. febrúar.

WP_20170216_09_12_23_Pro


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is