Skólakynningar

31.8.2017

Á hverju hausti fara fram skólakynningar fyrir foreldra/forráðamenn allra árganga í Hraunvallaskóla. Við vonumst að sjálfsögðu til þess að sjá sem flesta foreldra/forráðamenn á þessum kynningum því nám barnanna kemur okkur öllum við. Með góðri yfirsýn og jákvæðri samvinnu allra hlutaðeigandi má ávallt vænta betri árangurs. Hér fyrir neðan má sjá niðurröðun skólakynninga:

  •  7. bekkur – föstudaginn 1. september kl. 8:10 – 9:00. Staðsetning: Á heimasvæði.
  • 4. bekkur – mánudaginn 4. september kl. 8:10 – 9:00. Staðsetning: Í fyrirlestrarsal.
  • 2. bekkur – miðvikudaginn 6. september kl. 8:10 – 9:00. Staðsetning: Á heimasvæði.
  • 3. bekkur – fimmtudaginn 7. september kl. 8:10 – 9:00. Staðsetning: Á heimasvæði.
  • 5. bekkur – föstudaginn 8. september kl. 8:10 – 9:00. Staðsetning: Á heimasvæði.
  • 6. bekkur – mánudagur 11. september kl. 8:10 – 9:00. Staðsetning: Á heimasvæði.
  • 8., 9. og 10. bekkir – miðvikudaginn 13. september kl. 8:10 – 9:00, í fyrirlestararsal.

 Nemendur í 2., 3. og 4. bekk mæta í skólann á réttum tíma skv. stundaskrá þ.e. kl. 8:10 og verða í gæslu í matsal meðan á skólakynningu stendur. Nemendur annarra árganga þ.e. frá 5. – 10. bekk mæta í skólann kl. 9:00 þá daga sem skólakynningar fara fram í þeirra árgangi. Sérstakt skólafærninámskeið verður haldið fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 1. bekk þriðjudaginn 5. september kl. 18:00 – 21:00. Nánari upplýsingar verða sendar til þeirra foreldra. 

Við hlökkum til samstarfsins í vetur,

stjórnendur, kennarar og starfsfólk Hraunvallaskóla


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is