Umferðaröryggi

23.8.2017

Í upphafi hvers skólaárs er nauðsynlegt að fara yfir þær umferðarreglur sem gilda fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur til að leggja grunn að auknu öryggi nemenda í umferðinni. Sérstaklega er mikilvægt að huga vel að yngstu nemendunum en við skulum ekki gleyma að fræða þau eldri líka.  

Starfsfólk Hraunvallaskóla hefur alla tíð látið sig varða öryggi nemenda í umferðinni. Mörg umferðarverkefni hafa verið unnin í skólanum í gegnum árin til að stuðla að bættri umferðarmenningu og auknu umferðaröryggi og ætlum við að halda því áfram.

Þáttur heimilanna er mikilvægur í umferðarfræðslu og forvörnum sem felst meðal annars í því að sýna gott fordæmi. Til að styðja heimilin í þeirri viðleitni, vill skólinn benda á nokkur atriði sem foreldrar/forráðamenn geta stuðst við þegar þeir vinna með börnum sínum að því að tryggja sem best öryggi þeirra í umferðinni.

  • Æfum leiðina í og úr skóla með barninu

  • Veljum öruggustu leiðina í skólann – ekki endilega þá stystu

  • Kennum barninu að fara yfir götu, með og án ljósastýringar

  • Sýnum hvernig við hegðum okkur ef farið er um vegi án gangbrauta og gangstétta

  • Verum sýnileg, notum endurskinsmerki

  • Notum hjólreiðahjálm, bæði börn og fullorðnir

  • Notum viðeigandi öryggisbúnað í bifreið, bæði börn og fullorðnir

  • Tökum tillit til annarra vegfarenda, sérstaklega í nánd við skóla

  • Förum eftir leiðbeiningum skólans um umferð á skólasvæðinu

  • Förum yfir öryggi í kringum rútur og strætó

  • Bendum börnunum á örugg leiksvæði

 Það er von okkar að þessir punktar nýtist vel en við biðjum jafnframt um athugasemdir ef eitthvað mætti bæta.

14991403_10154359975822479_8917934931588539_o

Skólastjórnendur


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is