Vinaliðar

6.10.2016

 Vinaliðaverkefnið er að hefja göngu sína í skólanum okkar á næstu vikum. Þetta verkefni er norskt að uppruna og er það starfrækt í rúmlega 1000 skólum í Noregi. Vinaliðaverkefnið er einnig starfrækt í Svíþjóð og Danmörku með góðum árangri og stofnendurnir eru þegar byrjaðir að kynna verkefnið í  Þýskalandi og Bretlandi. Á Íslandi hefur Árskóli á Sauðárkróki séð um útbreiðsluna og hafa 30 grunnskólar, víðs vegar um landið, nú þegar innleitt verkefnið. Vinaliðaverkefnið gengur út á það að hvetja nemendur til meiri þátttöku í leikjum ýmss konar í frímínútum og skapa með því betri skólaanda.  Verkefnið er starfrækt á öllum stigum en við ætlum að hefja verkefnið í 1. – 4. bekk. Skólinn hefur skrifað undir samning um að hafa verkefnið í a.m.k. þrjú ár.  Aðalmarkmiðið er að allir nemendur skólans hlakki til að mæta í skólann sinn, alla daga.

 Einelti.

Skólalóðin og frímínúturnar eru, samkvæmt eineltisrannsóknum, því miður, helsti vettvangur fyrir einelti. Vinaliðaverkefnið er ekki eineltisáætlun heldur stuðningsverkefni við eineltisáætlun skólans og er hugmyndafræðin sú að þar sem boðið er upp á skipulagt starf og áhersla lögð á jákvæð samskipti, fái gerendur eineltis aðra hluti til að hugsa um. Aðgerðaleysi er nefnilega oft rótin að slæmum hlutum.

 Val á Vinaliðum.

Nemendur á yngsta stigi fá glærukynningu frá verkefnastjóra verkefnisins í skólanum þar sem þeir fá að vita hvað felst í starfinu og hvað þeir fái að launum, taki þeir það að sér. Eftir kynninguna í 3. og 4. bekk dreifir verkefnastjóri tilnefningablöðum og nemendur í þeim bekkjum tilnefna bekkjarfélaga sína sem þeir treysta í hlutverkið. Það er lögð áhersla á það við nemendur að þeir eigi að tilnefna nemendur sem þeir vita að komi vel fram við skólafélaga sína. Nemandi sem kemur illa fram við skólafélaga sína getur ekki tekið að sér starfið á því tímabili. En hann getur bætt hegðun sína og mögulega valist til starfsins einhvern tíma síðar.

Verkefnastjóri og umsjónakennarar fara yfir niðurstöðurnar úr hverjum bekk fyrir sig í lok dags þegar nemendur eru farnir heim. Verkefnastjóri og umsjónarkennari mega eiga við niðurstöðurnar að einhverju leyti. Veljist nemandi í starfið sem hefur neikvæðar vinsældir í bekknum, ber umsjónarkennara og verkefnastjóra að láta annan nemanda taka þá stöðu. Það þarf ekki að tilkynna nemendum að þurft hafi að eiga við niðurstöður.

Umsjónarkennarar hringja í foreldra þeirra barna sem völdust í starfið og biðja þá um að ræða við barnið sitt heima hvort það vilji taka að sér starfið. Barnið mætir í skólann að morgni næsta dags og hvíslar að umsjónarkennara sínum hvort það vilji taka að sér starfið. Þegar allir hafa gefið staðfestingu má umsjónarkennari tilkynna hverjir starfa sem Vinaliðar þetta tímabil.

Þetta er lærdómsríkt og þroskandi ábyrgðarstarf. Það er þess vegna markmiðið að koma helst öllum nemendum einhvern tíma í hlutverkið en það má ekki gleymast að það á enginn rétt á því að verða Vinaliði. Nemandi sem kemur illa fram við aðra og reynir ekki að bæta þá hegðun velst ekki í starfið.

Vinaliðar starfa frá hausti og fram að áramótum. Eftir áramótin fer aftur fram tilnefningaferli og nýir Vinaliðar veljast. Vinaliði getur starfað aftur, standi hann sig vel og njóti trausts kennara og samnemenda sinna.

Þumalputtareglan er að velja 1 Vinaliða fyrir hverja 5 nemendur í bekk og láta kynjahlutföllin í bekknum ráða fjölda hvers kyns. Þess vegna veljast 4 nemendur úr 20 barna bekk til að taka að sér starfið. Eftir áramótin veljast aðrir 4 nemendur og þá má geta sér til að á einu skólaári hafi valist 8 Vinaliðar úr 20 barna bekk. Þá erum við að reikna með því að nýir Vinaliðar komi inn í allar stöður.

 Vinnuframlag.

Vinaliðar starfa í hálft ár og enginn Vinaliði starfar oftar en tvennar frímínútur í viku. Vinaliðafrímínúturnar eru í fyrri frímínútunum kl: 9.30 – 9.50 fjóra daga vikunnar (ekki föstudaga). Vinaliði þarf að fara út á skólalóð 5 mínútum áður en frímínútur hefjast. Hann fer í Vinaliðavesti og setur upp leikjastöðina sína. Vinaliði sækir einnig fundi á tveggja vikna fresti. Þá skipuleggja Vinaliðar hvaða leikjastöðvar eiga að vera í boði næstu tvær vikurnar. Verkefnastjóri aðstoðar þá og raðar þeim síðan á stöðvar. Vinaliði starfar aldrei einn á stöð. Það er einnig hlutverk verkefnastjóra að passa upp á að ekki myndist föst pör Vinaliða sem starfa alltaf saman. Verkefnastjóri setur því upp ný pör á tveggja vikna fresti. Þegar Vinaliði á að starfa mætir hann fyrr út og býður alla velkomna í leikinn sem vilja. Það er aldrei fullt í Vinaliðaleik, Vinaliði finnur lausnir og hann kemur leiknum af stað og leikur með. Vinaliði er ekki gæslu- og þjónustuaðili fyrir hin börnin. Þetta eru frímínúturnar hans líka og hann á að leika með. Vinaliðinn leiðir leikinn áfram af sanngirni og með jákvæðum hætti.

Eitt mikilvægasta hlutverk Vinaliða er að bjóða öðrum börnum að vera með í leik. Mörg börn mæta beint á stöðvarnar og geta hafið leik en það er farið vel yfir það með Vinaliðunum að þegar leikurinn er byrjaður þá eigi þeir að hafa auga í kringum sína stöð og fara til barna í næsta nágrenni við leikinn og bjóða þeim að taka þátt í honum. Það er lögð áhersla á það við Vinaliðana að þeir bjóði börnum með nafni að vera með í leiknum. Það er eitt markmið verkefnisins að öll börn fái spurninguna ,,viltu vera með?“ í frímínútum.

 Hreyfing og skemmtun á venjulegum skóladegi.

Mikilvægt er fyrir börn og unglinga að fá fjölbreytta hreyfingu og skemmtun og er það nauðsynlegur hluti af þroska þeirra enda hafa rannsóknir sýnt að það er samhengi á milli hreyfingar og námsgetu. Við viljum því að framboð af hvers konar hreyfileikjum og annarri afþreyingu í frímínútum sé fjölbreytt og skipulagt þannig að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Vinaliðaverkefnið er okkar leið til að mæta þessu, en í verkefninu eru settir upp leikir og afþreying af nemendum sjálfum og á þeirra forsendum. Nemendur skólans hafa svo að sjálfsögðu val um hvort og þá hvaða leikjum þeir taka þátt í .

 Þátttaka í samfélaginu.

Við leggjum áherslu á að nemendur sem taka að sér starf Vinaliða fái innsýn í samfélag sitt og tilfinningu fyrir viðburðum og því menningarstarfi sem er í nærsamfélaginu. Þetta er gert til að Vinaliðarnir geti orðið kveikja að þátttöku nemenda og skólans alls í menningu samfélagsins. Vinaliðar fá því afhent samfélagskort þegar þeir hafa hafið störf í Vinaliðaverkefninu. Samfélagskortið veitir þeim afslátt eða frían aðgang að ýmsum viðburðum,söfnum og fleiru.

 Leikjanámskeið.

Vinaliðar sækja þriggja klukkustunda leikjanámskeið á skólatíma. Vinaliðarnir fara í marga leiki og flestir læra eitthvað nýtt. Á leikjanámskeiðinu fá Vinaliðarnir líka tilsögn um starfið, ráðleggingar um hvernig er best að virkja önnur börn í leik, mikilvægi þess að vinna gegn einelti og margt fleira.

 Umsjón/upplýsingar.

Í Hraunvallaskóla eru Kolbrún Jónasdóttir námsráðgjafi og Sigrún Sverrisdóttir umsjónarkennari verkefnastjórar Vinaliðaverkefnisins. Einnig er hægt að lesa sér meira til um verkefnið á heimasíðunni: https://tackk.comIMG_1914/vinalidar



Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is