Virkjun á tilkynningu 1. forráðamenn eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum á morgun miðvikudag.

20.2.2018

Kæru foreldrar/forráðamenn
Nú er búið að hækka viðvörunarstig fyrir höfuðborgarsvæðið upp í appelsínugult fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 21. febrúar og virkjum við því tilkynningu 1. Við hvetjum foreldra og forráðamenn að fylgjast með veðri og tilkynningum í fyrramálið.


Tilkynning 1, daginn áður: Veður getur seinkað ferðum nemenda til skóla á morgun. Skólar eru opnir, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skóla, þetta á sérstaklega við í efribyggðum og þar sem börn þurfa að fara yfir opin svæði á leið sinni í skóla. Með yngri börn er hér átt við 12 ára og yngra.

Announcement 1. In the morning because of bad weather.Due to weather conditions tomorrow, disruptions in school services may be expected today. Schools are open but parents and guardians are asked to escort children younger than 12 years to school. This especially concerns children living in upper areas that need to cross open spaces on their way to school.



Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is