Dagskrá framundan

Drekasprettur

Nú er framundan Lestrarátakið Drekasprettur sem hefur verið einn af vorboðunum hjá okkur hér í Hraunvallaskóla undanfarin ár. Spretturinn hefst mánudaginn17. apríl og stendur til sunnudagsins 30. apríl

Helstu markmið lestrarátaksins eru;

  • að þjálfa lestur
  • að auka almennan íslenskan orðaforða
  • að efla áhuga á lestri.

Allur íslenskur texti er gjaldgengur í lestrarátakinu; sögubækur, teiknimyndasögur, dagblöð, tímarit. fréttir og greinar. 


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is