Skólaslit hjá 1.-9. bekk
Foreldrar/forsjáraðilar eru velkomnir með á skólaslit í 1.-4. bekk. Nemendur byrja á sal og fara síðan með sínum kennurum á sitt heimasvæði. Á skólaslitum er grímuskylda fyrir foreldra/forsjáraðila þar sem við getum ekki tryggt 1 meters fjarlægðartakmörk.
Tímasetningar eru þessar:
kl. 08:30-09:00 Skólaslit í 1. bekk
kl. 09:00-09:30 Skólaslit í 2. bekk
kl. 09:30-10:00 Skólaslit í 3. bekk
kl. 10:00-10:30 Skólaslit í 4. bekk
Í 5.-9. bekk eru skólaslit kl. 10:30 og fara þau fram á/í heimasvæðum/stofum. Nemendur koma án foreldra/forsjáraðila á skólaslitin og fara heim að þeim loknum.
Skólaslit í fjölgreinadeild fimmtudaginn 10. júní
Foreldrar/forsjáraðilar eru velkomnir með á skólaslitin. Í boði verður kaffi og skúffukaka fyrir alla og sýning verður á verkum nemenda. Skólaslitin verða í húsnæði fjölgreinadeildarinnar kl. 09:30.