Appelsínugul viðvörun að morgni þriðjudags 7. febrúar
Veðurstofan hefur gefið
út appelsínugula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið þriðjudaginn 7. feb. kl. 06:00 – 08:00. Spáð er sunnan
stormi eða roki og mikilli úrkomu 20-28 m/s. Hvassast verður í efri byggðum og við
ströndina. Mikil úrkoma, slydda eða snjókoma. Veðrið gengur mjög hratt yfir en
færð getur spillst á meðan á því stendur. Almenna
reglan er sú að skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema það sé
sérstaklega tilkynnt. Foreldrar meta sjálfir hvort þeir treysta börnum sínum
til að ganga í og úr skóla, miðað við aldur og aðstæður. Á heimasíðu skólans má
finna leiðbeiningar um viðbrögð vegna röskunar á skólastarfi. Sjá hér https://www.hraunvallaskoli.is/skolinn/vidbragdsaaetlanir/
og einnig hér https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi