Drekasprettur
Nú er Drekaspretti formlega lokið í öllum deildum og má með sanni segja að hann hafi heppnast frábærlega. Nemendur sýndu mikinn áhuga og metnað og á köflum var keppnin hörð. Í yngri deild stóð 1.bekkur uppi sem sigurvegari í fyrsta sinn í sögunni. Í miðdeild gerði 7.bekkur sér lítið fyrir og vann Drekalestrarmeistaratitilinn þriðja árið í röð. Þau hafa því unnið bikarinn til eignar. Í unglingadeild varð 9.HBG hlutskarpastur. Hjá þeim verður veisla næsta föstudag í tilefni af vasklegri lestrarframgöngu.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla