Framundan í mars
Nú er komið að marsbréfinu og margt að gerast hjá okkur. Covid-19 er farið að leyfa okkur að taka meira og meira þátt í hinu daglega lífi og er það mjög upplífgandi fyrir okkur öll.
Ákveðið hefur verið að gera breytingar á gæslu og aðgengi utanaðkomandi inn í skólann frá og með mánudeginum 8. mars. Aðalinngangur skólans og drekavallarinngangurinn verða aðalinngangar skólans og verða opnir frá kl. 07:50-16:00. Aðrir inngangar verða einungis opnir frá kl. 07:50-08:30 á morgnana. Þegar foreldrar/forsjáraðilar koma í skólann þá fara þeir beint til ritara sem vísar þeim áfram samkvæmt erindi. Í ákveðnum tilfellum fá foreldrar/forsjáraðilar svokallaðan passa sem er leyfi til að vera í skólanum. Umsjónarkennarar munu fara yfir þetta með nemendum og gott að foreldrar/forsjáraðilar fari líka yfir breytingarnar með inngangana með sínu barni.
Eins og allir vita þá erum við að kljást við jarðskjálfta og náttúruhamfarir. Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga og förum við í Hraunvallaskóla eftir fyrirmælum almannavarna. Umsjónarkennarar hafa rætt við nemendur um hvað skal gera þegar jarðskjálfti verður og einnig hafa þeir rifjað upp rýmingarleið og rýmingarsvæði hvers og eins umsjónarhóps. Mikilvægast af öllu er þó að halda ró sinni og fylgja leiðbeiningum.
Dagana 9. og 11. mars verða skólamyndatökur í 1., 4., 7. og 10. bekk.
Nemendur í 10. bekk eru að setja upp söngleikinn Mamma Mia og verður hann sýndur föstudaginn 12. mars og laugardaginn 13. mars. Í viðhengi er plakat með sýningartímum og hvar má nálgast miða, einnig er hægt að sjá þessar upplýsingar á Facebooksíðum árganganna. Við hvetjum alla til að koma og sjá þessa frábæru krakka blómstra á sviðinu.
Eins og undanfarin ár verða Hraunvallaleikarnir í síðustu vikunni fyrir páska. Þeir eru 23., 24. og 25. mars og eru allir nemendur skólans þá frá kl. 08:15-13:20 í skólanum. Föstudaginn 26. mars er skertur skóladagur og eru nemendur þá í skólanum frá kl. 08:15 til 11:00 og opnar Hraunsel strax í framhaldinu fyrir 1.-4. bekk.
Páskafrí hefst síðan að loknum skóladegi þann 26. mars og stendur til og með 5. apríl. Nemendur og starfsfólk mæta í skólann úthvíld þriðjudaginn 6. apríl.