Kakó- og piparkökudagurinn

10.12.2021

Í dag var okkar árlegi kakó- og piparkökudagur þar sem við heimsóttum öll heimasvæði og nemendur fengu kakó og piparkökur. Þetta er skemmtileg hefð sem óhætt er að segja að vekji lukku. Það voru glöð andlit sem tóku á móti okkur og dásamlegt hvað allir voru þakklátir og ánægðir. Við í Hraunvallaskóla eru heppin að eiga svona flotta nemendur og foreldra. Foreldrafélag skólans gefur piparkökurnar og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Við ætlum að njóta næstu viku saman hér í skólanum og halda áfram að hafa jólagaman.

20211210_09021420211210_10145520211210_090241


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is