Lesið í öllum hornum

20.4.2018

Það er mjög gaman að ganga um skólann þessa daga - það er lesið í bókstaflega öllum hornum. Drekahreiðrin eru óðum að fyllast og unglingadrekar svífa um matsalinn. Það er meira að segja bókavagn í matsal kennara. 5. og 9. bekkur virðast hafa forystuna í augnablikinu, en allt getur þetta breyst. Við óskum ykkur öllum góða og lestrarvæna helgi og hlökkum til að telja dreka eftir helgina!


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is