Samræmd gleði

9.3.2018

Ég held það sé óhætt að segja að það sé samræmd gleði hjá nemendum og kennurum að loknum samræmdum prófum. Þrátt fyrir mikið álag á nemendum, endalausa bið og að detta út sí og æ - þá stóðu þau sig eins og hetjur. Eftir stærðfræðiprófið í gær sem gekk mjög vel tæknilega séð þá áttum við von á því sama í dag en því miður var sú ekki raunin og prófinu var frestað. Sjá tilkynningar frá Menntamálastofnun á FB vef þeirra. Við óskum öllum og sérstaklega 9. bekkingum frábæra helgi og treystum að þau hlakki til ferðarinnar að Laugum í næstu viku.


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is