Samtalsdagur 2. febrúar

22.1.2021

Þriðjudaginn 2. febrúar er rafrænn samtalsdagur í Hraunvallaskóla þar sem foreldri/forsjáraðili og barn eru saman að tala við umsjónarkennara í gegnum Google Meet. Skráningar í samtölin eru eins og áður í gegnum Mentor og opna kl. 08:00 mánudaginn 25. janúar og loka kl. 23:59 miðvikudaginn 27. janúar. Ef foreldri/forsjáraðili skráir sig ekki á tíma á þessu tímabili munu umsjónarkennarar gefa viðkomandi nemanda tíma í samtal í tölvupósti.

Umsjónarkennarar senda ykkur link á samtalið í tölvupósti fimmtudaginn 28. jan. eða föstudaginn 29. jan. Ef þið hafið ekkert fengið að þessum tíma liðnum hafið þá endilega samband við umsjónarkennara.

Þeir sem eru að fara í samtal með túlki fá þær tímasetningar sendar í tölvupósti og þurfa því ekki að skrá sig inn. Þeir fá líka sendan link á samtalið í tölvupósti fimmtudaginn 28. jan. eða föstudaginn 29. jan.

Hér er myndband um hvernig skal bóka samtal í Mentor fyrir þá sem ekki kunna eða eru óöruggir:
https://www.youtube.com/watch?v=mEFYnJhJAsM" rel="nofollow" target="_blank">https://www.youtube.com/watch?v=mEFYnJhJAsM.

Hlökkum til að eiga samtöl við ykkur öll.


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is