Skipulagsdagur 15. nóv.
Mánudagurinn 15. nóv. er skipulagsdagur hér í Hraunvallaskóla. Þá eru nemendur í fríi og kennurum gefst tími til skipulagningar skólastarfsins. Hraunsel er opið og þeir nemendur sem eru búnir að skrá sig þangað mæta hressir og kátir. Hlökkum til að taka á móti nemendum að nýju þriðjudaginn 16. nóv. á hefðbundnum tíma.