Skólahreysti 2021

14.5.2021

Skólahreysti 2021 fór fram miðvikudaginn 12. maí. Að vanda áttum við lið í þeirri keppni og stóðum við okkur frábærlega. Við erum afar stolt af okkar liði sem endaði í 4. sæti í riðlinum. Við bættum okkar besta tíma í hraðaþrautinni og hreystigreipinu. Nemendur okkar voru skólanum til sóma undir leiðsögn Ingvars og Jóa íþróttakennara. 
Liðið okkar var þannig skipað:
Lið kvenna: Karítas Kristín Traustadóttir, Karen Eva Birgisdóttir og til vara Hekla Hergilsdóttir
Lið karla: Tristan Snær Daníelsson, Andri Steinn Ingvarsson og til vara Jason Sigþórsson

Áfram Hraunvallaskóli


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is