Skólasetning 23. ágúst
Þriðjudaginn 23. ágúst er skólasetning í Hraunvallaskóla fyrir skólaárið 2022-2023. Við hlökkum til að koma skólastarfinu af stað og hitta okkar frábæru nemendur. Nemendur koma á mismunandi tímum á skólasetninguna og eru foreldrar hjartanlega velkomnir með.
Hér eru tímasetningarnar á skólasetninguna:
kl. 09:00 2. og 3. bekkur
kl. 09:30 4. og 5. bekkur
kl. 10:00 6. og 7. bekkur
kl. 10:30 8. - 10. bekkur
1. bekkingar fá boð frá skólanum um hvenær þeir eiga að mæta í viðtal hjá umsjónarkennara þennan dag. Formleg skólasetning verður síðan daginn eftir kl. 08:15 á sal skólans. Eftir skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum sínum inn á heimasvæði og hefja skólagönguna.
Í Hraunseli eru skipulagsdagar bæði mánudaginn 23. og þriðjudaginn 24. ágúst og er Hraunsel því lokað báða þessa daga.