Skólastarfið
Eins og við vitum öll þá hafa smitin í þjóðfélaginu verið upp á við þessar síðustu vikur. Þrátt fyrir það þá ætlum við að halda ótrauð áfram í sóttvörnum og að taka tillit til hvers annars. Við mælumst eindregið til þess að þeir nemendur sem eru að koma erlendis frá fari í PCR próf áður en komið er í skólann. Þannig gerum við okkar besta í að vernda hvert annað.
Við hlökkum til að hitta nemendur aftur og hefja skólastarf eins óbreytt og lög gera ráð fyrir.