Söngvaseiður í Hraunvallaskóla

29.3.2023

Undanfarin ár hefur verið settur upp söngleikur í söngleikjavali og er það sannarlega einn af hápunktum ársins. Síðustu helgi sýndu nemendur söngleikinn Söngvaseið, eða Sound of music. Hátt í 300 manns komu á sýninguna sem var vel heppnuð og krakkarnir stóðu sig frábærlega. Það er ekki auðvelt að setja upp svona stórt verk en við notuðum sama handrit og notað var í Þjóðleikhúsinu. Þökkum við öllum sem komu og óskum við krökkunum til hamingju með þetta vel heppnaða verkefni.

Songvaseidur-5Songvaseidur-4Songvaseidur-3Songvaseidur-2Songvaseidur-1Songvaseidur-6



Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is