Stóra upplestrarkeppnin

5.3.2021

Miðvikudaginn 3. mars var Stóra upplestrarkeppnin haldin innanhúss. Það er óhætt að segja að keppendur stóðu sig afskaplega vel en Hekla Katrín Freysdóttir og Sigurður Ísak Hlynsson verða fulltrúar okkar í lokakeppni og Nataníel Máni Stefánsson valinn til vara. Lokahátíðin verður heldin í Víðistaðakirkju 23. mars. Keppnin var hin glæsilegasta. Nemendur úr 6. bekk fluttu tónlistar- og dansatriði og sigurvegarar úr keppninni í fyrra fluttu ljóð. Það verður að spennandi að fylgjast með verðugum fulltrúum okkar í lokakeppninni. Áfram Hraunvallaskóli


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is