Til starfsmanna og forráðamanna nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar
Það er að koma jólafrí í grunnskólum Hafnarfjarðar og langþráð hvíld framundan. Með þessum jólapósti viljum við þakka samstarfið alla haustönnina um leið og við viljum kynna það skipulag sem tekur við byrjun janúar. Eins og staðan er höfum við ekki fengið að vita hvort, og þá hverjar, verði breytingar á reglum um skólastarf um áramótin. En núverandi reglur gilda til 31. desember.
Skólastjórnendur í grunnskólum Hafnarfjarðar hafa þó fengið þau tilmæli að undirbúa breytingar með aukningu á kennslu í 5.-10. bekk frá áramótum á meðan skóla- og frístundastarf í 1.-4. bekk verður óbreytt frá því sem nú er og matarþjónustan og starfsemi félagsmiðstöðva sömuleiðis. Núna eru að jafnaði 4 kennslustundir í skóla í 5.-10. bekk en þær munu verða a.m.k. 5 á dag að jafnaði, eða 25 á viku, í þessum árgöngum eftir áramótin. Þannig höfum við ákveðið að láta aðstæður í hverjum skóla ráða, því þær eru mismunandi á hverjum stað, því hversu mikil kennsla, og hvaða, verður í einstaka bekkjum í skólum. Það leiðir til þess að ekki verður gefið að það verði jafnræði í kennslutímamagni milli hafnfirskra grunnskóla hjá nemendum á sama aldri. Það var ákveðið að opna á þennan möguleika frekar en að hafa áfram jafna kennslu milli skóla sem hefði dregið úr fjölda kennslutíma hjá flestum. Valgreinar í 8.-10. bekk er ekki hægt að hefja enn sem komið er og Tækniskólinn hefur tilkynnt að hann muni ekki vera með valgrein sína fyrir nemendur í 10. bekk sem stóð til að yrði í vetur. Stefnt er að því að halda þessu fyrirkomulagi, ef þess verður nokkur kostur, uns takmörkunum á skólastarfi verður aflétt og hægt verður að fara í hefðbundið og fullt skólastarf.
Við væntum þess að jólahátíðin og áramótin verði ykkur öllum ánægjuleg og við eigum áfram gott samstarf á næsta ári um að búa áfram til skólastarf sem svari þörfum allra nemenda okkar fyrir menntun, jákvæð samskipti og vellíðan í námi og leik.
Hafnarfirði 15. desember 2020.
Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs