Tilkynning - Sóttvarnir
Kæru foreldrar/forsjáraðilar
Því miður eru fréttir af covid smitum undanfarna daga alls ekki góðar. Það sýnir okkur enn og aftur að við megum ekki láta deigan síga og að þessari baráttu er ekki lokið hjá okkur. Það er því ENN MEIRI ástæða til að skerpa á sóttvörnunum og brýna allar aðgerðir okkar. Við þurfum að gera allt sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir smit í skólanum okkar og koma í veg fyrir að stór hópur þurfi að fara í sóttkví. Ég vil því ítreka einstaklingsbundnar sóttvarnar með handþvotti og spritti og 1M regluna. Eins er mikilvægt að takmarka alla óþarfa umferð fullorðinna um skólann okkar. Foreldrar/forsjáraðilar eru því vinsamlegast beðnir um að koma ekki inn í skólabygginguna nema brýna nauðsyn beri til.
Þá vil ég minna á viðmið um hvenær grunnskólanemendur og starfsfólk eiga EKKI að mæta í skólann. Nemendur/starfsfólk eiga EKKI að mæta í skólann ef þau:
• Eru í sóttkví, einangrun eða bíða niðurstöðu sýnatöku.
• Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
• Eru með flensueinkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverki, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.). Miðað er við að skólabörn og starfsfólk skuli vera hitalaust a.m.k. einn sólarhring áður en þau snúa aftur í skólann ef veikindi stafa af öðru en COVID-19.
Þetta eru allt þættir sem við kunnum en nauðsynlegt að minna á. Vonandi er þetta ekki einkennandi um það sem koma skal en það kemur í ljós á næstu dögum en þangað til förum sérstaklega varlega og stöndum vörð um skólann okkar.
Kær kveðja, Lars Jóhann Imsland skólastjóri