Unglingarnir frábærir

18.3.2022

Á miðvikudaginn var Grunnskólahátíðin haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu. Frá okkur fóru um 160 unglingar og skemmtu sér "geggjað vel". Þeir voru algjörlega til fyrirmyndar og erum við í Hraunvallaskóla afar stolt af okkar frábæru unglingum.

Gaman er að segja frá því að alltaf fyrir þessa hátíð er keppni milli skóla um flottustu auglýsinguna. Við sigruðum þessa keppni og á skreytinganefndin mikið hrós skilið fyrir vel gerða og flotta auglýsingu, innilega til hamingju.

Til hamingju Hraunvallaskóli fyrir að eiga flottustu unglingana.

Auglysing-Hraunvallaskola275225095_10158394130557097_8669637576643584479_n


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is