Dagskrá framundan

Fjölgreindaleikar

Vikuna 24. - 27. mars verður þemavika í Hraunvallaskóla. Þessa viku ætlum við að vera með Fjölgreindaleika í skólanum þar sem nemendur frá 1. - 10. bekk eru saman í hópum, fara um skólann og leysa fjölbreytt verkefni sem reyna á mismunandi hæfni. Munu leikarnir standa frá þriðjudegi til fimmtudags. Nemendur á unglingastigi verða hópstjórar og varahópstjórar og verða yngri nemendum til halds og trausts. Mæting er kl. 8:10 alla daga og hætt kl. 13:10 nema á föstudeginum en þá verður skertur skóladagur sem lýkur 11:10. Mikilvægt er að nemendur mæti stundvíslega þessa daga þar sem stöðvarnar eru á mismunandi stöðum í skólanum.


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is