112 - dagurinn

14.2.2019

112-dagurinn var haldinn um land allt sl. mánudag, 11.febrúar (11.2). Að þessu sinni var sjónum beint að öryggismálum heimilisins. Stór hluti símtala í neyðarnúmerið 112 á rætur að rekja til slysa og annarra áfalla á heimilum fólks. Fólk verður alvarlega veikt heima eða slasast, börn komast í lyf og önnur hættuleg efni, eldur kemur upp á heimilinu, þjófar láta greipar sópa, svo nokkur dæmi séu nefnd. Í 112-blaðinu sem fylgdi Fréttablaðinu á mánudaginn (og er einnig hér) er bent á fjölmargt sem hægt er að gera til að fyrirbyggja atvik af þessu tagi og bregðast við þeim, til dæmis með því að læra skyndihjálp, efla fallvarnir og auka eldvarnir og varnir gegn innbrotum. Þar er einnig að finna lista yfir öryggisatriði, nk. tékklista til þess að einfalda úttekt á slysavörnum heima fyrir.

Á baksíðu blaðsins er kynning á spennandi verklagi tengt endurlífgunarkennslu sem innleitt hefur verið í skólahjúkrun og hefst slík kennsla vonandi á þessu skólaári. Meira um það í 112-blaðinu, sem ég hvet ykkur til þess að skoða, helst öll fjölskyldan í sameiningu og nýta ykkur tékklistann sem þar er að finna. Þannig tryggið þið öryggi ykkar betur og stuðlið að vitundavakningu meðal heimilismeðlima, einkum barnanna sem eru oftar en ekki eru mjög móttækileg fyrir efni sem þessu.

Í tilefni 112-dagsins var skemmtilegt innslag í Landanum sl. sunnudag, 10. febrúar þar sem gerð er öryggisúttekt á hefðbundnu heimili norðan heiða. Tilvalið fyrir fjölskylduna að setjast niður og horfa á þann þátt saman áður en gerð er öryggisúttekt á heimilinu: http://www.ruv.is/sjonvarp/spila/landinn/25783?ep=89lip3.

112 er samræmt neyðarnúmer Evrópu og er dagurinn haldinn víða um álfuna til að minna á að aðeins þarf að kunna þetta einfalda númer til þess að fá aðstoð í neyð. Markmiðið með 112-deginum er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum og undirstrika mikilvægi samstarfs þeirra og samhæfingar.

112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land. Með von um aukið öryggi innan veggja heimila.

246x0w


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is