Fundur um mat á skóla og mat í skóla

19.4.2017

Þriðjudaginn 25. apríl verður fundur í fyrirlestrarsal kl. 19.30 þar sem kynntar verða niðurstöður á ytra mati Menntamálastofnunar á Hraunvallaskóla og helstu niðurstöður Skólapúlsins, foreldra- og nemendahluta. Þá mætir fulltrúi frá Skólaaski á staðinn til að ræða upplifun nemenda og foreldra á Skólaaski. Á fundinum verður einnig óskað eftir fulltrúum foreldra í matsteymi skólans. Við hvetjum alla foreldra og velunnara Hraunvallaskóla til að mæta.

WP_20170419_10_04_29_Pro


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is