Grískir kennarar í heimsókn í Hraunvallaskóla

25.10.2016

Þessa dagana erum við með góða gesti frá Grikklandi í heimsókn. Þetta eru þær Elini Sirma og Harri Koutiva. Þær eru kennarar og komu hingað til að kynna sér opna skólann og upplýsingatækni. Í morgun heimsóttu þær 7.bekki og fylgdust með þegar krakkarnir kynntu verkefni sem þeir hafa verið að vinna á ipad hjá Hjördísi Ýrr upplýsingatæknikennara og verkefnisstjóra ipadinnleiðingar.   


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is