Litla upplestrarkeppnin

7.4.2014

Litla upplestrarkeppnin var haldin 3. og 4. apríl hjá 4. bekk, þar sem hver og einn nemandi keppir við sjálfan sig. Í raun er réttara að tala um hátíð frekar en keppni. Stífar æfingar voru búnar að vera hjá nemendum og ekki hægt að segja annað en þeir hafi staðið sig frábærlega vel. Foreldrum var boðið að koma ásamt 3. bekk skólans. Eftir keppnina var boðið uppá veitingar á heimasvæði 4.bekkjar. Að lokinni keppninni fengu nemendur afhent viðurkenningarskjöl.
HafnarfjarðarbærHafnarfjarðarbærHafnarfjarðarbærHafnarf

Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is