Framhaldsskólakynningar

2.2.2016

Næstkomandi fimmtudag, 4.febrúar, verður kynning á námsframboði framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu fyrir nemendur í 10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og forráðamenn þeirra.
Kynning þessi er frá kl. 17:00-18:30 og fer fram í aðalsal Flensborgarskóla. Hver framhaldsskóli verður með kynningarbás þar sem námsframboð og inntökuskilyrði verða kynnt.

Þeir framhaldsskólar sem verða með kynningarbás eru: Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskólinn í Ármúla, Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Kvennaskólinn, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn og Verzlunarskóli Íslands.


Við hvetjum alla nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra að nýta sér þetta tækifæri.

 

Námsráðgjafar grunnskólanna í Hafnarfirði  og Námsráðgjafar Flensborgarskóla

 


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is