Dagur einhverfu á föstudaginn

30.3.2016

Alþjóðlegur dagur einhverfunnar er á næsta leiti og föstudaginn 1.apríl næstkomandi hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í sessi sem litur einhverfunnar um heim allan. Líkt og undanfarin ár er það BLÁR APRÍL – Styrktarfélag barna með einhverfu, sem stendur fyrir deginum.

Markmið bláa dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins. Síðustu ár hafa flestir skólar landsins og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir tekið þátt í bláa deginum með því að hafa bláa litinn í fyrirrúmi.

Hraunvallaskóli ætlar að sjálfsögðu að vera með hvetjum við alla til að mæta í bláu nk. föstudag. Margir hafa brugðið á það ráð að setja myndir á instagram og facebook og merkja þær með myllumerkinu #blarapril sem hefur gætt daginn skemmtilegum blæ og hjálpað til við að breiða út þennan jákvæða boðskap.


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is