Reglur um niðurfellingu á fæðisgjaldi

Reglur um niðurfellingu eru birtar á vef bæjarins https://www.hafnarfjordur.is/stjornsysla/frettir/nidurfelling-a-faedisgjaldi-vegna-systkina-i-grunnskolum

Reglur vegna niðurfellingar á fæðisgjaldi

1.Ef þrjú systkini eða fleiri með lögheimili í Hafnarfirði eru á grunnskólaaldri greiðir Hafnarfjarðarkaupstaður að fullu hádegismat frá og með þriðja systkini í áskrift í grunnskólanum. Systkini eru nemendur sem eru með sama lögheimili og fjölskyldunúmer í þjóðskrá.

2. Ef um þrjú systkini eða fleiri er að ræða þurfa öll eða a.m.k þrjú að vera skráð í hádegismat svo gjald sé fellt niður hjá þriðja systkini. Forsjáraðili/forráðamaður greiðir aldrei hádegisverð fyrir fleiri en tvö systkini á grunnskólaaldri á sama tíma. 3. Skrifstofa Fræðslu- og frístundaþjónustu útvegar innheimtuaðila hádegisverðar í grunnskólum Hafnarfjarðar upplýsingar um þau systkini sem uppfylla fyrstu grein reglnanna.

4. Sé fjölskyldumynstur annað en kemur fram í fyrstu grein þarf að sækja sérstaklega um afslátt á MÍNAR SÍÐUR .

5. Ef að systkini sem eiga rétt á niðurfellingu skv. fyrstu grein er í grunnskóla utan Hafnarfjarðar eða sjálfstætt reknum skólum í Hafnarfirði fær næsta systkini niðurfellingu svo framarlega sem það er í grunnskóla í Hafnarfirði. Sé næst elsta systkini einnig í skóla utan Hafnarfjarðar færist niðurfellingin á þriðja elsta systkinið og áfram ef við á.

6. Stundi systkini á grunnskólaaldri, með sama lögheimili í Hafnarfirði og sama fjölskyldunúmer, nám sitt utan sveitarfélagsins gilda sömu reglur um niðurfellingu fæðisgjalds.


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is