Opið fyrir skráningu á frístundaheimili 2024-2025

16.1.2024

Opið er fyrir skráningu á frístundaheimili Hafnarfjarðarbæjar fyrir skólaárið 2024-2025. Frístundaheimilin eru í boði fyrir börn í 1. – 4. bekkjum grunnskólanna og starfa við alla grunnskóla bæjarins. Markmið frístundaheimilanna er að hvert barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Umsóknir sem berast fyrir 15. júní eru í forgangi

Opnað hefur verið fyrir skráningu á frístundaheimili Hafnarfjarðarbæjar fyrir skólaárið 2024-2025. Frístundaheimilin eru í boði fyrir börn í 1. – 4. bekkjum grunnskólanna og starfa við alla grunnskóla bæjarins. Hlutverk frístundaheimilanna er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur með m.a. hópastarfi, smiðjum, útiveru og vali auk þess að bjóða upp á frístundaakstur á íþróttaæfingar. Markmið frístundaheimilanna er að hvert barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní)

Umsóknir sem berast eftir þann tíma geta farið á biðlista og eru ekki afgreiddar fyrr en í ágúst. Við skráningu er mikilvægt að tryggja að allar upplýsingar séu réttar og sérþarfir skráðar. Þegar barn fær vistun á frístundaheimili þá berst boð um vistun á það netfang sem fylgdi skráningu barns. Boð þarf að staðfesta með svari innan þriggja daga. Sérstök sumarfrístund stendur 6 ára börnum til boða í ágúst áður en fyrsta skólaárið þeirra hefst. Skráning á 6 ára námskeið fer fram á vormánuðum og er auglýst sérstaklega.

Nánari upplýsingar um frístundaheimilin í Hafnarfirði

Umsókn um frístundaheimili í Völu


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is