Samtalsdagur 11. október

10.10.2023

Á morgun 11. október er samtalsdagur hjá okkur. Allir foreldrar/forsjáraðilar ættu að vera komnir með viðtalstíma með umsjónarkennara og barni. Við hvetjum alla til þess að mæta og eiga samtal um líðan og framvindu barnsins síns. Á göngum skólans mun 7. bekkur vera með kökusölu til styrktar skólaferðalagi þeirra á Reyki. Endilega fá sér kaffi og köku á undan eða eftir samtali. 

Kokusala



Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is