Vegna matarmála

27.10.2017

Það tilkynnist hér með að Hafnarfjarðarbær og Skólaaskur (ISS) hafa komist að samkomulagi um að slíta samstarfi um þjónustu á mat til leik- og grunnskólabarna í Hafnarfirði. Það samstarf mun hætta þriðjudaginn 31. október nk. Á þessum tímapunkti þakkar bærinn Skólaaski fyrir samstarfið.Hafnarfjarðarkaupstaður hefur samið við fyrirtækið Skólamat ehf. um að fyrirtækið taki að sér að veita þá þjónustu sem Skólaaskur veitti áður. Mun samkomulagið gilda út skólaárið 2017-2018. Starfsemi Skólamatar hefst miðvikudaginn 1. nóvember nk. Út þá viku má þó búast við óhefðbundnum matseðli á vegum Skólamatar sökum skamms undirbúnings. Mánudaginn 6. nóvember (í síðasta lagi) hefst starfsemin samkvæmt hefðbundnum matseðli á vegum Skólamatar og sömuleiðis afgreiðsla sérfæðis.

 Á mánudaginn kemur, 30. október, mun foreldrum berast póstur frá Skólamat, þar sem kynnt verður hvernig staðið verði að pöntunum á mat sem tekur gildi þann 1. nóvember og áfram. Allir sem ætla að kaupa matarþjónustu eftir 1. nóvember þurfa því að skrá sig á mat hjá Skólamat og eldri skráningar hjá Skólaaski falla niður á sama tíma. Það gildir bæði um almennar mataráskriftir og sérfæði. Við þessar þjónustubreytingar á fyrirtækjum verða þó engar breytingar á skipulagi eða verði á mat til nemenda öðruvísi en að nú verður Skólamatur viðskiptaaðili við foreldra í stað Skólaasks. Við væntum þess að umræddar breytingar verði foreldrum og nemendum til sem minnstra óþæginda og allir finni lítið fyrir þeim þrátt fyrir að ný skráning þurfi að gerast sem allra fyrst eigi ekki að vera rof á matarþjónustu við barn/börn þitt/þín.


Hraunvallaskóli | Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Sími 590-2800 | Netfang hraunvallaskoli@hraunvallaskoli.is